Jónas Hallgrímsson - Úr ljóðinu Dalvísa
Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
Geranium pratense 'Galactic'
Ættkvísl   Geranium
     
Nafn   pratense
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Galactic'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Garðablágresi
     
Ætt   Blágresisætt (Geraniaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   - 75 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt, allt að 75 sm há. Jarðstönglar þéttir.
     
Lýsing   Grunnlauf allt að 20 sm breið, skipt í 7-9 mjóa flipa, fjaðurskipta, separ beinast út á við, allt að 10 mm breiðir við grunninn, jaðrar með hvassar eða snubbóttar tennur, aðlæg hár á efra borði, æðatrengir á neðra borði hærðir, laufleggur hærður. Stöngullauf smærri, með styttri legg, djúpgræn. Blómskipunin er með flatan topp, blómskipunarleggir allt að 10 sm, blómin skállaga. Bikarblöð allt að 12 mm, mjókka í oddinn, oddurinn allt að 3,5 mm. Krónublöð allt að 22 mm, bogadregin í oddinn, hvít með gagnsæar æðar, skarast, fræflar lengri en bikarblöðin. Frjóþræðir dökkbleikir, hærðir við grunninn, frjóhnappar dökkir. Ung aldin og blómleggir baksveigðir, trjóna allt að 30 mm, frævur allt að 5 mm, fræjum slöngvað burt.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Léttur, frjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting að vori eða hausti, sáning.
     
Notkun/nytjar   Sem undirgróður, í beð, í blómaengi.
     
Reynsla   Harðgerð jurt sem þarf að binda upp.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is