Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Saxifraga burnatii
Ættkvísl   Saxifraga
     
Nafn   burnatii
     
Höfundur   Sünderm.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjallasteinbrjótur
     
Ætt   Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Júní-júlí.
     
Hæð   15 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölæringur, blendingur spónasteinbrjóts (S. cochlearis) og bergssteinbrjóts (S. paniculata), myndar blaðhvirfingar.
     
Lýsing   Laufin eru lensulaga til öfugegglaga, silfurgræn, Blómskipunin er lotinn skúfur, blómskipunarleggir með rauða slikju, blómin hvít.
     
Heimkynni   Náttúrulegur blendingur.
     
Jarðvegur   Malarborinn, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í kanta.
     
Reynsla   Ekki í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.   Yrkið 'Esther' er með gul blóm.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is