Jón Thoroddsen - Barmahlíð
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.
Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?
Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali! |
|
Filipendula vulgaris 'Flore Pleno'
Ættkvísl |
|
Filipendula |
|
|
|
Nafn |
|
vulgaris |
|
|
|
Höfundur |
|
Moench. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
'Flore Pleno' |
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Brúðarmjaðjurt |
|
|
|
Ætt |
|
Rósaætt (Rosaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
F. hexapetala Gilib. 'Flore Pleno' |
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær jurt. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól, hálfskuggi. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Hvítur, purpura neðst. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Júlí. |
|
|
|
Hæð |
|
- 60 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Fjölær jurt, allt að 60 sm há. |
|
|
|
Lýsing |
|
Stönglar ógreindir, hárlausir, rætur eru með egglaga hnýði. Lauf 17-51 flipótt, smálauf allt að 2 sm, randhærð, fjaðurskipt með mjóar tennur. Blómin ofkrýnd, drúpandi, í skúf allt að 10 sm, oftast 6 til 9 mm, rjómalit. Aldin allt að 4 mm, upprétt, dúnhærð. |
|
|
|
Heimkynni |
|
Yrki. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Meðalrakur, sendinn. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
3 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Skipting. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í steinhæðir, í beð, sem undirgróður. |
|
|
|
Reynsla |
|
Harðgerð jurt. Þrífst vel í Lystigarðinum. Þolir vel þurrk. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|