Úr ljóðinu Barmahlíð eftir Jón Thoroddsen
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Erigeron speciosus
Ættkvísl   Erigeron
     
Nafn   speciosus
     
Höfundur   (Lindl.) DC.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Garðakobbi
     
Ætt   Körfublómaætt (Asteraceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Bláfjólublár / gul miðja.
     
Blómgunartími   Júlí til september.
     
Hæð   30-80 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Garðakobbi
Vaxtarlag   Líkur fagurkobba (E. peregrinus) en blómstönglarnir hárlausir nema rétt neðan við körfunar, stönglar blöðóttir alveg upp að blómunum.
     
Lýsing   Blöðin mjólensulaga, oddmjó, heilrend, randhærð, 3-tauga. Blómkörfur í stærra lagi með afar margar tungukrónur. Tungur 70-150, u.þ.b. 1 mm breiðar, fjólubláar eða stöku sinnum hvítar. Svifkrans tvöfaldur, innri úr 20-30 þornhárum, ytri hárin stutt.
     
Heimkynni   Fjöll í NV N Ameríku, Mexíkó.
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, sendinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   1,2
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í fjölæringabeð, til afskurðar.
     
Reynsla   Harðgerð og auðræktuð tegund. Yrkin hafa þó reynst nokkuð misjafnlega í ræktun, stundum skammlíf.
     
Yrki og undirteg.   Fjöldi er til af yrkjum sem aðallega eru flokkuð eftir lit og stærð tungnanna og hvert yrki gæti verið blendingur. RHS Nokkur yrki má nefna svo sem: 'Blue Shades' Þroskaði fræ '03. 'Dr. Worth' Þroskaði fræ '01. 'Dunklester Aller' 60 sm hátt yrki með dökkfjólublá blóm. 'Förster´s Liebling' (Benary/Walther 1951) 60 sm, hálffyllt blóm, tungukrýndu blómin dökkbleik. Þrífst vel. 'Märchenland' er með rósbleik blóm. 'Ping Pong' fjólublátt, harðgert og langlíft yrki. 'Pink Jewel' Tungukrýndu blómin föl-lillableik. 'Rose Jewel'. 'Schöenheit'. 'Schwarzes Meer'(Götz 1970) um 60 sm tungukrýndu blómin dimmfjólublá. 'Sommerneuschnee' er um 60 sm með hvít blóm með bleikri slikju. 'Strahlenmeer' um 70 sm hátt yrki með ljósfjólubláum blómum. 'Superbus'. 'Violetta' um 70 sm hátt yrki með dökkfjólubláum og fylltum körfum. 'Wuppertal' (Arends 1932) 60 sm, hálffyllt, tungukrýndu blómin ljósfjólublá. Þrífst vel. Fleiri mætti nefna: ss. 'Adria', 'Charity', 'Dignity', 'Lilofee' 'Marchenland', 'Quakeress', 'Rosa Triumph' , 'Rotes Meer', 'Violetta' ofl. - látum það duga í bili. Erigeron speciosus ssp. macranthus (Nutt.) Cronq. Stöngullauf eru egglaga, körfur minni en á aðaltegundinni og reifablöð hárlaus. (RHS, HHP, HS95)
     
Útbreiðsla  
     
Garðakobbi
Garðakobbi
Garðakobbi
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is