Málsháttur
Eigi fellur tré við hið fyrsta högg.
Primula algida
Ættkvísl   Primula
     
Nafn   algida
     
Höfundur   Adams.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Freralykill
     
Ætt   Maríulykilsætt (Primulaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól - hálfskuggi.
     
Blómlitur   Fjólublár - ljósfjólublár, gult auga.
     
Blómgunartími   Snemmsumars.
     
Hæð   Allt að 20 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lágvaxin oft skammlíf tegund, sumargræn, oftast mjölvuð, yfirleitt ekki skriðul. Lauf hárlaus, slétt eða hrukkótt með fíngerðar tennur, aftursveigð í brumlegunni, vængjuð við blaðfót en oft ógreinilega. (Sbr. Section Aleurita í EGF)
     
Lýsing   Lík gefnarlykli (P. farinosa) og blúndulykli (P. frondosa) en ytri lauf í eins konar jarðlægum kransi, öfugegglaga, fíntennt. Stoðblöð bandlaga, aftursveigð, ekki uppblásin við grunninn. Blómstönglar lengjast við fræþroskun, haldast beinir, bikar allt að 1 sm, pípulaga, skertur til meir en hálfs í snubbótta, mjó-aflanga flipa. Blóm í sveip, fjólublá - ljósfjólublá. Krónublöð sýld. Krónupípan stendur ekki út úr bikarnum og fræhýði nær heldur ekki út úr bikarnum.
     
Heimkynni   Kákasus, N Íran, Afganistan, N-Pakistan, Rússland, Kína, N-Mongólía.
     
Jarðvegur   Frjór, vel framræstur, rakaheldinn.
     
Sjúkdómar   Engir.
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1, 2, 12
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð, í breiður, í kanta.
     
Reynsla   Ekki til sem stendur (var um tíma í garðinum og stóð sig með prýði) - stendur til að endurnýja.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is