Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Sambucus sachalinensis
Ættkvísl   Sambucus
     
Nafn   sachalinensis
     
Höfundur   Pojark.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Eyjayllir
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Hálfskuggi (sól).
     
Blómlitur   Hreinhvítur.
     
Blómgunartími   Júní-júlí.
     
Hæð   1,8-2,4 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur, brúskkenndur runni. Laufin dökkgræn, glansandi.
     
Lýsing   Laufin sumargræn, dökkgræn, stakfjöðruð, stakstæð, egg-lensulaga, sagtennt og með lauflegg. Blómin hvít, í klasa, ilma mikið. Berin rauð í klösum. Hægt að nota í vín eins og aldin svartyllisins.
     
Heimkynni   Sakhalin.
     
Jarðvegur   Sendinn, djúpur, frjór, rakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar   Viðkvæmur fyrir hunangssvepp.
     
Harka  
     
Heimildir   www.plant-world-seeds.com/store/view-seed-item/1187?itemname=SAMBUCUS+SACHALINENSIS, en.hortipedia.com/wiki/Sambucus-sachalinensis, www.pflanzen-ries.de/Gartencenter-Muechen/Blumen-Pflanzen/Gartenplanung/Baeume/Baumschule-Gartenbau/lexikon.pphp?id=6135
     
Fjölgun   Sáning, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í blönduð trjá- og runnabeð. Runninn er ræktaður vegna ilms blómanna. Þolir allt að -23°C.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur undir þessu nafni (komu undir S. sachalinensis 'Laciniata') sem sáð var 1990 og gróðursettar 1990 og 1992, báðar hafa kalið talsvert.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is