Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Juniperus communis 'Compressa'
Ættkvísl   Juniperus
     
Nafn   communis
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Compressa'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Einir
     
Ætt   Sýprisætt (Cupressaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sígrænn runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Karlblóm gulleit.
     
Blómgunartími   Apríl-júní.
     
Hæð   0,5-0,8 m
     
Vaxtarhraði   Mjög hægvaxta.
     
 
Vaxtarlag   Dvergvaxið yrki, mjó keilulaga, vex mjög hægt (2-3 sm á ári), sjaldan meira en 80 sm hátt, allar greinar stífuppréttar, toppur mjög mjór.
     
Lýsing   Nálar mjög fíngerðar, 4-5 mm langar, grannar, ljósgrænar, með greinilega hvíta loftaugarák á efra borði, dökkgræn á neðra borði.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Meðalrakur, meðalfrjór-fremur magur, vel framræstur
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   = 7
     
Fjölgun   Sumargræðlingar, síðsumargrælingar.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpingar, í steinhæðir og víðar.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 2010, er í sólreit (2014).
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is