Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Crocus x luteus 'Dutch Yellow'
Ættkvísl   Crocus
     
Nafn   x luteus
     
Höfundur   Lam.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Dutch Yellow'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Gulkrókus
     
Ætt   Sverðliljuætt (Iridaceae).
     
Samheiti   ‘Golden Yellow’, ‘Golden Giant’, ‘Yellow Mammoth’
     
Lífsform   Hnýði.
     
Kjörlendi   Sólríkur vaxtarstaður.
     
Blómlitur   Djúpgulur.
     
Blómgunartími   Vorblómstrandi.
     
Hæð  
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag  
     
Lýsing   Blóm stór, djúpgul.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Léttur, frjór, framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Hnýði.
     
Notkun/nytjar   Í trjá- og runnabeð, í beðkanta.
     
Reynsla   Hnýði úr blómabúð (frá Hollandi) voru gróðursett í beð 1991, J8-G72; 1996, J8-C01; 1998, F3-A02; 2002, C11-46; 2005 N12-B12 og N12-A16. Þrífast vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is