Hulda - Úr ljóðinu Sorg
Þar sem blóm í laufalautum
ljúfu máli saman tala,
sem að ást og angur skilja, ?
blágresi og burknar grannir,
brönugrös og músareyra,
ljósberi og lækjarstjarna,
litlar fjólur, æruprísar,
gullmura og gleym-mér-eigi, ?
vildi ég mega minnast þín.
Viburnum recognitum
Ættkvísl   Viburnum
     
Nafn   recognitum
     
Höfundur   Fernald
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Geitaber*
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól eða hálfskuggi.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Sumar.
     
Hæð   - 4,5 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi runni, náskyldur V. dentatum, en hárlaus.
     
Lýsing   Laufin þunn, oddbaugótt-lensulaga til kringlótt, snörp viðkomu, stutt-odddregin, hvasstennt. Aldinsteinn hnöttóttir-egglaga og grunn rákóttir.
     
Heimkynni   A Bandaríkin.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sumargræðlingar, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í beð, í þyrpingar.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1998 og gróðursett í beð 2000, hefur kalið talsvert, einkum fyrstu árin.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is