Í morgunsárið - Ragna Sigurðardóttir
Í morgunsárið greiðir hún sér með trékambi. Hægt með föstum
strokum. Vöxturinn er svo mikill að hana kitlar í svörðinn. Hún
strýkur hendinni yfir gróðurinn. Finnur blóm springa út undir
fingurgómunum. Sóleyjar og baldursbrár. Hún leggur kambinn frá
sér. Fer út í garðinn og krýpur. Kippir upp kartöflugrösum. Rótar og
grefur með berum höndum. Djúpt ofan í moldinni finnur hún sætar og
safaríkar appelsínur.
Crataegus columbiana v. chrysocarpa
Ættkvísl   Crataegus
     
Nafn   columbiana
     
Höfundur   Howell.
     
Ssp./var   v. chrysocarpa
     
Höfundur undirteg.   (Ashe) Dorn
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Grænþyrnir
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae)
     
Samheiti   Crataegus chrysocarpa Ashe
     
Lífsform   Lauffellandi tré
     
Kjörlendi   Sól
     
Blómlitur   Hvítur
     
Blómgunartími   Vor
     
Hæð   - 6 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Krónumikið tré allt að 6 m hátt. Greinar þéttar, þyrnar grannir.
     
Lýsing   Lauf 3-5 sm, breiðegglaga til kringluleit. Flipar í 3-4 pörum, með tvöfaldar tennur. Blóm um 2 sm í þvermál. Bikarblöð með kirtilhár. Aldin næstum hnöttótt, rauð, holdið gult.
     
Heimkynni   NA N-Ameríka
     
Jarðvegur   Léttur, vel framræstur, meðalfrjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   H2
     
Heimildir   2
     
Fjölgun   Haustsáning.
     
Notkun/nytjar   Stakstæð tré, í raðir, í blönduð runnabeð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til eitt tré undir þessu nafni sem sáð var til 1984 og gróðursett í beð 2000, kelur flest ár.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is