Málsháttur
Engin er rós án þyrna.
Cotoneaster ignavus
Ættkvísl   Cotoneaster
     
Nafn   ignavus
     
Höfundur   E. Wolf
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Glæsimispill
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi eða hálfsígrænn runni
     
Kjörlendi   Sól
     
Blómlitur   Bleikur
     
Blómgunartími   Maí
     
Hæð   - 2 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi eða hálfsígrænn, uppréttur runni, náskyldur C. niger, stífuppréttur, allt að 2 m hár. Ungar greinar í byrjun gráflókahærðar, seinna hárlausar.
     
Lýsing   Laufin gormstæð, egglaga, 2,5-4,5 sm löng, dökkgræn ofan, hvítgræn neðan, hærð. Blómin 8-13 í gisblóma blómskipun. Krónublöð upprétt, skástæð, (mikilvægt einkenni!), bleik. Aldin dökkbrúnrauð, oddvala, allt að 8 mm löng, með 2-3 kjarna/fræ. Laufið appelsínugult á haustin.
     
Heimkynni   A Túrkestan, Tienshan.
     
Jarðvegur   Léttur, meðalfrjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   7
     
Fjölgun   Haustsáning, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í blönduð beð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 1998. Er í sólreit 2011, lofar góðu.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is