Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Lewisia columbiana ssp. rupicola
Ættkvísl   Lewisia
     
Nafn   columbiana
     
Höfundur   (Howell. ex A. Gray) Robinson
     
Ssp./var   ssp. rupicola
     
Höfundur undirteg.   (English) Ferris
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Geislablaðka
     
Ætt   Grýtuætt (Portulacaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sígræn, fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Purpuralitur.
     
Blómgunartími   Maí-júlí.
     
Hæð   - 30 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Sjá aðaltegund.
     
Lýsing   Krónublöð 10-13 mm, milli eða sterk purpura, rauðrófupurpura eða rósbleik.
     
Heimkynni   Bandaríkin (Oregon, Washington), Kanada.
     
Jarðvegur   Léttur, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1, http://plants.usda.gov
     
Fjölgun   Sáning, skipting að hausti. Gott er að setja möl kringum rótarhálsinn svo vatn liggi ekki upp að honum og valdi rotnun.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í skriðubeð, í hlaðna steinveggi.
     
Reynsla   Þrífst vel í Lystigarðinum, ber falleg blóm og sáir sér dálítið.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is