Málsháttur
Eigi fellur tré við hið fyrsta högg.
Lonicera tatarica v. leroyana
Ættkvísl   Lonicera
     
Nafn   tatarica
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var   v. leroyana
     
Höfundur undirteg.   (Zab.) Rehd.
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Rauðtoppur
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti   L. tatarica v. xanthocarpa Endl.
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól-hálfskuggi.
     
Blómlitur   Milli-purpurableikur.
     
Blómgunartími   Vor-sumar.
     
Hæð   - 2-3 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lágvaxinn, þéttur, lauffellandi runni.
     
Lýsing   Laufin aflöng-lensulaga, allt að 7 sm löng, bogadregin við grunninn, randhærð. Blómin sjaldséð, eru 35 sm í þvermál, milli-purpurableik með hvíta krónublómajaðra. Blómstrar treglega og er lítt eftirtektarverð hvað blómgun viðvíkur.
     
Heimkynni   S Rússland til M Asíu.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   21,http://arnoldia.arboretum.harvard.edu
     
Fjölgun   Sáning, vetrar- eða sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í Limgerði, í kanta, í trjá- og runnabeð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein gömul, aðkeypt planta undir þessu nafni, gróðursett í beð 1985, þrífst vel. kelur lítið.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is