Í morgunsárið - Ragna Sigurðardóttir
Í morgunsárið greiðir hún sér með trékambi. Hægt með föstum
strokum. Vöxturinn er svo mikill að hana kitlar í svörðinn. Hún
strýkur hendinni yfir gróðurinn. Finnur blóm springa út undir
fingurgómunum. Sóleyjar og baldursbrár. Hún leggur kambinn frá
sér. Fer út í garðinn og krýpur. Kippir upp kartöflugrösum. Rótar og
grefur með berum höndum. Djúpt ofan í moldinni finnur hún sætar og
safaríkar appelsínur.
Lonicera tatarica ‘Sibirica’
Ættkvísl   Lonicera
     
Nafn   tatarica
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   ‘Sibirica’
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Rauðtoppur
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti   L. ‘Rubra’, L. tatarica f. sibirica (Pers.) Rehd.
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól-hálfrunni.
     
Blómlitur   Djúprauður með hvíta kanta.
     
Blómgunartími   Vor-sumar.
     
Hæð   - 4 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur, lauffellandi runni, allt að 4 m hár. Sprotar gráir, hárlausir,
     
Lýsing   Lauf allt að 6 sm, egglaga til lensulaga, hvassydd, bogadregin eða hálfhjartalaga við grunninn, oftast hárlaus, sjaldan smádúnhærð, bláleit á neðra borði. Blómin tvö og tvö saman, axlastæð. Blómleggir allt að 2 sm. Krónan allt að 2,5 sm. Krónupípan bein eða ögn útblásin við grunninn. Berin hnöttótt, skarlatsrauð til gulappelsínugul. Krónuflipar djúprauðir, breiður, hvítur jaðar.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Vetrar- eða sumargræðlingar, sveiggræðsla.
     
Notkun/nytjar   Í klippt eða óklippt limgerði, í blönduð trjá- og runnabeð, í þyrpingar.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein gömul planta undir þessu nafni, sem þrífst nokkuð vel, kelur lítið.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is