Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Lonicera tatarica ‘Hack’s Red’
Ættkvísl   Lonicera
     
Nafn   tatarica
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   ‘Hack’s Red’
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Rauðtoppur
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól-hálfskuggi.
     
Blómlitur   Bleikrauður.
     
Blómgunartími   Vor-sumar.
     
Hæð   - 4 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur, lauffellandi runni, allt að 4 m hár. Sprotar gráir, hárlausir,
     
Lýsing   Lauf allt að 6 sm, egglaga til lensulaga, hvassydd, bogadregin eða hálfhjartalaga við grunninn, oftast hárlaus, sjaldan smádúnhærð, bláleit á neðra borði. Blómin tvö og tvö saman, axlastæð. Blómleggir allt að 2 sm. Krónan allt að 2,5 sm. Krónupípan bein eða ögn útblásin við grunninn. Berin hnöttótt, skarlatsrauð til gulappelsínugul. Blómin bleikrauð.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Vetrar- eða sumargræðlingar, sveiggræðsla.
     
Notkun/nytjar   Í limgerði, trjá- og runnabeð, í þyrpingar.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein gömul planta undir þessu nafni, sem þrífst vel, kelur dálítið.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is