Málsháttur
Lengi býr að fyrstu gerð.
Lonicera tatarica 'Discolor’
Ættkvísl   Lonicera
     
Nafn   tatarica
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Discolor’
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Rauðtoppur
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól-hálfskuggi.
     
Blómlitur   Ljósbleikur, krónublöð með djúprauða jaðra og bak.
     
Blómgunartími   Vor-sumar.
     
Hæð   - 4 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur, lauffellandi runni, allt að 4 m hár. Sprotar gráir, hárlausir,
     
Lýsing   Lauf allt að 6 sm, egglaga til lensulaga, hvassydd, bogadregin eða hálfhjartalaga við grunninn, oftast hárlaus, sjaldan smádúnhærð, bláleit á neðra borði. Blómin tvö og tvö saman, axlastæð. Blómleggir allt að 2 sm. Krónan allt að 2,5 sm. Krónupípan bein eða ögn útblásin við grunninn. Berin hnöttótt, skarlatsrauð til gulappelsínugul. Krónan ljósbleik innan, jaðrar og bakhlið djúprauð.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur , vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   1, 7
     
Fjölgun   Vetrar- eða sumargræðlingar, sveiggræðsla.
     
Notkun/nytjar   Í klippt eða óklippt limgerði, í blönduð beð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 1979 og gróðursett í beð 1981. vex vel, kelur lítið
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is