Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Lonicera involucrata ´Kera´
Ættkvísl   Lonicera
     
Nafn   involucrata
     
Höfundur   (Richardson) Spreng.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   ´Kera´
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Glótoppur
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól eða skuggi.
     
Blómlitur   Gulur með rautt stoðblað
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   2-3 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur runni, breiður og nokkuð óreglulegur í vextinum. 2-3 m hár.
     
Lýsing   Grófir, ferkantaðir sprotar, 8-12 sm löng, leðurkennt lauf. Blómin eru gul með lakkrauð stoðblöð. Glansandi svört, dálítið eitruð ber.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   http://www.jordbeargartneriet.no
     
Fjölgun   Græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Notið í runnaþyrpingar, óklippt limgerði til skjóls Í þéttbýl og meðfram umferðaræðum. Hafið 0,3-0,5 m milli plantnanna í limgerði og 3-4 m í þyrpingar. Nægjusamur runni þolir bæði sól og skugga. Hættir seint að vaxa og kelur oft dálítið. Þolir mikla klippingu og þolir salt.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein aðkeypt planta sem gróðursett var í beð 1991. Mjög falleg, þrífst nokkuð vel, kelur lítið.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is