Halldór Kiljan Laxness , Bráðum kemur betri tíð.
Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga,
sæta langa sumardaga.

Amelanchier lamarckii
Ættkvísl   Amelanchier
     
Nafn   lamarckii
     
Höfundur   G. Schroed.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Garðamall
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Júní.
     
Hæð   - 10 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Stór runni eða margstofna lítið tré allt að 10 m hátt, ungar greinar silkihærðar.
     
Lýsing   Lauffellandi tré eða runni allt að 10 m hár. Ungar greinar með þornhár, verða hárlaus. Lauf 8,5 × 5 sm, oddbaugótt, aflöng-oddbaugótt eða aflöng-öfugegglaga. Snubbótt eða næstum ydd eða oddlaus til stutt odddregin. Grunnur bogadreginn til fleyglaga, með fínar hvassar tennur sem vita fram á við næstum allan hringinn á laufinu, koparrauðar og þornhærðar, lauf verða hárlaus á blómgunartímanum. Blómklasar 7,5 sm langir, strjálblóma, með 6-10 blóm. Krónublöð um 14 × 5 mm, öfuglensulaga til oddbaugótt, hvít. Eggleg hárlaus í toppinn. Aldin um 9,5 mm í þvermál, hnöttótt, purpurasvört. &
     
Heimkynni   A Kanada.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   H1
     
Heimildir   2,10
     
Fjölgun   Sáning, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í blönduð beð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 2000 og gróðursett í beð 2007.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is