Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Berberis mouillacana
Ættkvísl   Berberis
     
Nafn   mouillacana
     
Höfundur   C.K. Schneid.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Lundabroddur
     
Ætt   Mítursætt (Berberidaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Runni
     
Kjörlendi   Sól
     
Blómlitur   Gulur
     
Blómgunartími   Vor
     
Hæð   - 2 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi, þyrnóttur, uppréttur runni.
     
Lýsing   Mjög líkur B. silva-taroucana, en greinarnar eru rauðar (ekki gular). Lauf mjó-öfugegglaga, glansandi græn neðan (ekki blágræn). Blómskipun stutt, aldin 8 mm löng.
     
Heimkynni   Kína (V Sichuan)
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   H1
     
Heimildir   2,7
     
Fjölgun   Haustsáning, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Stakstæðir, í raðir, í blönduð beð og víðar.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 1992 og gróðursett í beð 2004.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is