Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Prunus avium ‘Van’
Ættkvísl   Prunus
     
Nafn   avium
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   ‘Van’
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fuglakirsi
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi tré.
     
Kjörlendi   Sól og skjól.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Vor.
     
Hæð   5-6 m
     
Vaxtarhraði   Meðalvaxtarhraði.
     
 
Vaxtarlag   Kröftugt, upprétt tré.
     
Lýsing   Upprétt tréð sem verður 5,5-6,1 m hátt og 4,6-6,1 m breitt, með fallegan börk. Trén eru kröftug og auðræktuð og bera ríkuleg uppskera af ljúffengum, sætum kirsiberjum. Trén eru líka er mjög skrautleg. Laufið er djúpgrænt, gljáandi, sagtennt og þau þekja krónuna allt sumarið. Trén blómstra mikið á vorin, þá birtast klasar af hvítum blómum með sætum ilm. Blómin eru bollalaga, með 5 krónublöð. Safarík, sæt og rauð kirsuberin eru í klösum eða stök, oftast þroskuð um mitt sumar (erlendis).
     
Heimkynni   Upprunalega blendingur frá V Asíu.
     
Jarðvegur   Vel framræstur, meðalfrjór, sendinn og leirkenndur, meðalvökvun.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z3
     
Heimildir   http://www.learn2grow.com
     
Fjölgun   Græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Tréð er ekki sjálffrjóvgandi og því þarf að gróðursetja annað kirsuberjatré (af sætum kirsuberjum) rétt hjá Prunus avium ‘Van’ svo að það tré þroski einhverja teljandi uppskeru. Mælt er með yrkinu ‘Bing’ til víxlfrjóvgunarinnar. Sæt kirsuber vaxa best þar sem vetur eru langir og svalir og sumrin eru þurr. Lítill sumarraki tryggir að aldinin verð sem sætust og springa ekki meðan þau eru að þroskast. Öll yrki af sætum kirsuberjum þurfa fulla sól og vel framræstan jarðveg, sem er meðalfrjór. Sendinn og leirkenndur jarðvegur er bestur. Trén þroska betur aldin ef þau eru snyrt árlega. Snyrtið/klippið trén þegar þau eru í dvala bæði til að forma þau betur eða bara til að fjarlægja óæskileg rótarskot. Kirsuberin geta aðeins lifað þar sem vetur eru kaldir og þurfa árlega kulda í 1000 til 1500 klukkustundir til að blómstra mikið og þroska góða uppskeru. Fuglakirsið 'Van' er harðgert fuglakirsiyrki sem ber bæði góð ber og er líka allmennt séð allsherjar frjóberi fyrir flest önnur kirsuberjayrki. Aldinin eru ögn minni en ‘Bing’, en uppskeran meiri. Verndið þroskaða ávexti fyrir fuglum, (fuglanet er vinsæl aðferð), njótið að borða berin fersk, niðursoðin eða bökuð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein aðfengin planta, sem plantað var í beð 2005, illa farin og brotin 2011.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is