Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Ribes alpinum ssp. lucidum
Ættkvísl   Ribes
     
Nafn   alpinum
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var   ssp. lucidum
     
Höfundur undirteg.   Pawl.
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjallarifs, alparifs
     
Ætt   Garðaberjaætt (Grossulariaceae).
     
Samheiti   Ribes lucidum Kit.
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Gulgrænn.
     
Blómgunartími   Snemmsumars.
     
Hæð   1,5 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur, umfangsmikill runni.
     
Lýsing   Þessi planta er mjög frábrugðin öðru fjallarifsi í Lystigarðinum. Laufin eru mjórri en á aðaltegundinni (P. alpinum L. s.str.) með áberandi mjórri miðflipa. Berin eru hnöttótt, rauð og bragðvond.
     
Heimkynni   Evrópa til Síberíu.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, kalkríkur, jafnrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   2
     
Heimildir   http://www.loodiskalender.ee og fleira af netinu.
     
Fjölgun   Græðlingar, sveiggræðsla.
     
Notkun/nytjar   Í trjá- og runnabeð, í þyrpingar og víðar.
     
Reynsla   Ein planta með þessu nafni er til í Lystigarðinum, sem var sáð 2000. Hún var 1,1 m há 2011 og bar gnótt rauðra, súrra, ekki keimgóðra berja.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   Vex stöku sinnum í blandskógi í heimkynnum sínum.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is