Í morgunsárið - Ragna Sigurðardóttir
Í morgunsárið greiðir hún sér með trékambi. Hægt með föstum
strokum. Vöxturinn er svo mikill að hana kitlar í svörðinn. Hún
strýkur hendinni yfir gróðurinn. Finnur blóm springa út undir
fingurgómunum. Sóleyjar og baldursbrár. Hún leggur kambinn frá
sér. Fer út í garðinn og krýpur. Kippir upp kartöflugrösum. Rótar og
grefur með berum höndum. Djúpt ofan í moldinni finnur hún sætar og
safaríkar appelsínur.
Ribes giraldii
Ættkvísl   Ribes
     
Nafn   giraldii
     
Höfundur   Jancz.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Gaddarifs
     
Ætt   Garðaberjaætt (Grossulariaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Gulgrænn.
     
Blómgunartími   Apríl-maí.
     
Hæð   2-3 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi útbreiddur runni, 2-3 m hár, náskyldur R. pulchellum. Flestir hlutar runnans eru dúnhærðir og með kirtilhár. Smágreinar eru dúnhærðar í fyrstu og kirtilhærðar, 2 þyrnar við lið, stífir, stundum ekki til staðar. Milli liðanna eru engir þyrnar eða með fáeinir, grannir þyrnar.
     
Lýsing   Brum grágul, aflöng, smá, hvassydd, brumhlífar smádúnhærðar á jöðrunum. Blaðstilkar 0,8-2 sm, dúnhærðir og með kirtilhár, laufblaðkan breiðegglaga, sjaldan hálfkringlótt, 1,5-3 sm, grunnur hálf-þverstýfður til grunn-hjartalaga, stundum fleyglaga, flipar 3-5, jaðrar gróftenntir og kirtilhærðir, oddar snubbóttir. Endaflipinn tígullaga til tígullaga-egglaga, lengri en hliðafliparnir. Karlklasar uppréttir, slakir, 3-7 sm, 8-20(-25)-blóma, kvenreklar 2-3 sm, 2-6 blóma, stoðblöð lensulaga til aflöng, jafnlöng til lengri en blaðstilkarnir. Bikar gulgrænn, kirtilhærður, stundum eru kirtilhárin ekki með legg. Krónupípan grunn-bikarlaga til skállaga. 2-3 × 3-4,5 mm, flipar útstæðir eftir blómfallið, aftursveigð þegar berin eru þroskuð, öfugegglaga-oddbaugótt til tungulaga, 3-4 mm. Krónublöð öfugegglaga til hálftungulaga, 1-1,5 mm. Fræflar næstum jafnlangir krónublöðunum. Eggleg stundum legglaust, kirtilhært. Stíll ögn lengri en fræflarnir, með tvo flipa í toppinn. Berin rauð, hnöttótt, 0,6-0,8 sm, dúnhærð, verða hárlaus með aldrinum, kirtlar með leggi eða legglausir.
     
Heimkynni   Kína ( A Gansu, Liaoning, Shaanxi, SV Shanxi).
     
Jarðvegur   Sendinn, meðalfrjór, hæfilega rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   1, www.efloras.org/florataxon.aspx?flora-id=20001072, Flora of China
     
Fjölgun   Sáning, síðsumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í runnabeð, í þyrpingar og víðar.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru tvær plöntur undir þessu nafni, sem sáð ar til 1983, hafa kalið dálítið flest ár.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   AÐRAR UPPLÝSINGAR: Skógar á sjávarströnd, trjáþykkni í brekkum, giljum, skurðbakkar, vegkantar frá sjávarborði og upp í miðjar hlíðar.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is