Í morgunsárið - Ragna Sigurðardóttir
Í morgunsárið greiðir hún sér með trékambi. Hægt með föstum
strokum. Vöxturinn er svo mikill að hana kitlar í svörðinn. Hún
strýkur hendinni yfir gróðurinn. Finnur blóm springa út undir
fingurgómunum. Sóleyjar og baldursbrár. Hún leggur kambinn frá
sér. Fer út í garðinn og krýpur. Kippir upp kartöflugrösum. Rótar og
grefur með berum höndum. Djúpt ofan í moldinni finnur hún sætar og
safaríkar appelsínur.
Ribes alpinum 'Pumilum'
Ættkvísl   Ribes
     
Nafn   alpinum
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Pumilum'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjallarifs, alparifs
     
Ætt   Garðaberjaætt (Grossulariaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól eða hálfskuggi.
     
Blómlitur   Gulgrænn.
     
Blómgunartími   Júní.
     
Hæð   < 1 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Þéttvaxið yrki og smáblöðótt, innan við 1 m á hæð.
     
Lýsing   Útbreiddur runni, laufin lík og á aðaltegundinni.
     
Heimkynni   Evrópa.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   2
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Sáning, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpingar, í runna- og trjábeð og víðar.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur sem sáð var til 1991 og þrjár plöntur sem sáð var til 1992, kala ögn af og til, eru annars fallegir og gróskumiklir með skærgula haustliti fram eftir hausti (nóvember 2011).
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is