Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Echinops ritro 'Taplow Blue'
Ættkvísl   Echinops
     
Nafn   ritro
     
Höfundur   L. non hort.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Taplow Blue'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Bláþyrnikollur
     
Ætt   Körfublómaætt (Asteraceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Sterkblár.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   100 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Bláþyrnikollur
Vaxtarlag   Mjög kröftug, fjölær jurt,
     
Lýsing   Blómin sterkblá.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Léttur, meðalfrjór, framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í skrautblómabeð.
     
Reynsla   Staðsettur í syðra körfublómabeðinu og reynst afar vel (L3-F40 900146)
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Bláþyrnikollur
Bláþyrnikollur
Bláþyrnikollur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is