Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Crocus sieberi ssp. atticus 'Violet Queen'
Ættkvísl   Crocus
     
Nafn   sieberi
     
Höfundur   Gay
     
Ssp./var   ssp. atticus
     
Höfundur undirteg.   (Boissier & Orphanides) Mathew
     
Yrki form   'Violet Queen'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Grikkjakrókus
     
Ætt   Sverðliljuætt (Iridaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Hnýði.
     
Kjörlendi   Sólríkur vaxtarstaður.
     
Blómlitur   Fjólublár-ljóspurpura.
     
Blómgunartími   Vorblómstrandi - apríl.
     
Hæð   Um 8 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Grikkjakrókus
Vaxtarlag   Sjá aðaltegund.
     
Lýsing   Um 8 sm háar plöntur. Blómin kúpuvaxin, fjólublá-ljóspurpura á stuttum leggjum.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Léttur, meðalfrjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   7
     
Heimildir   1 og upplýsingar af umbúðum laukanna.
     
Fjölgun   Hliðarhnýði.
     
Notkun/nytjar   Sem undirgróður í trjá- eða runnabeð, í beðkanta og víðar.
     
Reynsla   Laukar úr blómabúð (frá Hollandi), gróðursettir í beð 1996, A4-E11. Flott eintak, sem þrífst vel, blómgast í lok apríl.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Grikkjakrókus
Grikkjakrókus
Grikkjakrókus
Grikkjakrókus
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is