Jón Helgason - Úr ljóðinu Áfangar
Séð hef ég skrautleg suðræn blóm
sólvermd í hlýjum garði;
áburð og ljós og aðra virkt
enginn til þeirra sparði;
mér var þó löngum meir í hug
melgrasskúfurinn harði,
runninn upp þar sem Kaldakvísl
kemur úr Vonarskarði.
Taxus x media 'Hillii'
Ættkvísl   Taxus
     
Nafn   x media
     
Höfundur   Rehd.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Hillii'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Garðaýr
     
Ætt   Ýviðarætt (Taxaceae).
     
Samheiti   T. media pyramidalis hillii Keen
     
Lífsform   Sígrænn runni.
     
Kjörlendi   Hálfskuggi (sól).
     
Blómlitur  
     
Blómgunartími  
     
Hæð   Allt að 3 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   'Hillii' er allt að um 3 m hátt form, breiðkeilulaga í vextinum eða nálgast að vera kúlulaga. Árssprotar mjög þéttstæðir, uppréttir, hliðarárssprotar stuttir.
     
Lýsing   Nálar 20-22 mm langar, um 2,5 mm breiðar, yddar, gljáandi dökkgrænar ofan, grasgrænar að neðan.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Léttur, frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   7
     
Fjölgun   Sumargræðlingar í ágúst-september.
     
Notkun/nytjar  
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er ein planta frá sem keypt var 2000 og gróðursett í beð 2001. Vetrarskýling 2001-2007. Þrífst vel, kelur ekkert, er mjög falleg.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is