Málsháttur
Eigi fellur tré við hið fyrsta högg.
Juniperus pseudosabina
Ættkvísl   Juniperus
     
Nafn   pseudosabina
     
Höfundur   Fisch & Mey
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn  
     
Ætt   Sýprisætt (Cupressaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sígrænn runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Karlblóm gulleit.
     
Blómgunartími  
     
Hæð   50-100 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Jarðlægur runni, getur orðið allt að 4 m hár í heimkynnum sínum. Gamlar greinar sívalar, uppréttar-uppstæðar. Ársprotar stuttir, grófir, 4-kantaðir um það bil 2 mm breiðir.
     
Lýsing   Barr hreisturlaga, gagnstæð egg-tígullaga, 1-3 mm löng, snubbótt, grágræn, kúpt, með sljóan kjöl á bakhliðinni og með einn kirtil, að hluta til nállaga (barr) á ungum sem og gömlum plöntum. Aldin egglaga, 10-12 mm löng og 6-8 mm breið, svört með 1 stóru fræi.
     
Heimkynni   Turkestan (Altai- og Targabatai-fjöll).
     
Jarðvegur   Léttur, vel framræstur, fremur magur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   7
     
Fjölgun   Sáning, síðsumagræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í þyrpingar, í beð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur undir þessu nafni, sem sáð var til 1999 og gróðursettar í beð 2004. Ekkert kal.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is