Halldór Kiljan Laxness - Heimsljós

"Fegursta blómið, það lifir í huldum stað, fæstir fá nokkurntíma að sjá það, mörgum sést yfir það, nokkrir kunna ekki skil á gildi þess, þeir sem uppgötva það munu ekki sjá annað blóm síðan. Allan daginn hugsar maður um það. Þegar maður sefur dreymir mann það. Maður deyr með nafn þess á vörum."

Lilium speciosum
Ættkvísl   Lilium
     
Nafn   speciosum
     
Höfundur   Thunb.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fagurlilja
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti   L. auratum
     
Lífsform   Fjölæringur og laukplanta.
     
Kjörlendi   Sólríkur vaxtarstaður.
     
Blómlitur   Hvítur, fagurrauð slikja við grunninn, blettir bleikir eða skarlatsrauðir.
     
Blómgunartími   Síðsumars.
     
Hæð   90-200 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttir, laufóttir stönglar.
     
Lýsing   Laukar hnöttóttir,10×10 sm, sammiðja, hreistur hvít, gul eða brún, sköruð, lensulaga, ydd. Stönglar grannir og seigir, 90-200 sm háir, grænir með purpuralitri slikju. Þeir mynda rætur. Lauf allt að 18×6 sm, stakstæð, breiðlensulaga til aflöng, með legg, 7-9 tauga. Blóm í laufóttum klösum, 1 eða allt að 12, drúpandi eða vita út á við, ilma, túrbanlaga, 15 sm breið, blómleggir allt að 10 sm. Blómhlífarblöð allt að 10×4,5 sm, hvít, með fagurrauða slikju við grunninn og með bleika eða skarlatsrauða bletti, baksveigð, lensulaga til egglensulaga, jaðrar bylgjaðir, næstum hvítir. Frjó dökkrautt.
     
Heimkynni   Kína, Japan, Taiwan.
     
Jarðvegur   Frjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1, Jelitto, L and Wilhelm Schacht 1990 Hardy Herbaceous Perennials. I &II. – third ed. London. --- Upplýsingar af umbúðum laukanna.
     
Fjölgun   Með fræi.
     
Notkun/nytjar   Laukarnir eru gróðursettir með 25 sm millibili í beð eða beðjaðra. Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur og í skjóli fyrir næðingum, en ekki fast upp við suðurvegg, þar verður of þurrt. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla. Jarðvegur þarf að vera frjór, ríkur af lífrænum efnum og vel framræstur. Mælt er með að setja lauf eða annað lífrænt yfir moldina til að halda betur rakanum í moldinni. Fjarlægið dauð blóm en látið stönglana standa áfram fram eftir hausti meðan lauf er grænt. Laukarnir eru látnir vera á sínum stað og blómstra ár eftir ár. Blómstrar seint og nær því oft ekki að ljúka blómgun í svölu loftslagi, hægt að rækta í kerum í rakri mómold, hentar einnig að rækta undir gleri, einkum hvíta formið.
     
Reynsla   Laukur var keyptur og gróðursettur í Lystigarðinn 1991, lifði ekki af veturinn, dó 1992.
     
Yrki og undirteg.   v. album Mast. ex Bak. Stönglar purpurabrúnir. Blómin hvít. ----- v. rubrum Mast. ex Bak. (Lilium speciosum Thunb. ‘Rubrum’). Stönglar purpurabrúnir. Blóm fagurrauð.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is