Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Lilium bulbiferum v. bulbiferum
Ættkvísl   Lilium
     
Nafn   bulbiferum
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var   v. bulbiferum
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Eldlilja
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölæringur og laukplanta.
     
Kjörlendi   Sólríkur vaxtarstaður.
     
Blómlitur   Appelsínurauður, krónublaðaoddar rauðir, dálítið rauðdoppótt.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   60-150 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttir, laufóttir stönglar.
     
Lýsing   Stönglar 60-120 sm háir með mörg mjólensulaga lauf og með æxlilauka í öxlum efstu laufanna á sumrin. Laukar hvítir. Blóm endastæð á stönglinum, í sveip með allt að 20, upprétt, appelsínurauð og bollalaga blóm með rauða krónublaðaodda, dálítið rauðdoppótt. Sjaldgæft afbrigði.
     
Heimkynni   N Bavaría, Thuringia, Erz Mts.
     
Jarðvegur   Frjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   Jelitto, L and Wilhelm Schacht 1990 Hardy Herbaceous Perennials. I &II. – third ed. London.
     
Fjölgun   Fræ, hliðarlaukar og með laukhreistrum.
     
Notkun/nytjar   Í skrautblómabeð á skjólgóðum stöðum.
     
Reynsla   Ekki í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is