Málsháttur
Mjór er mikils vísir.
Cornus canadensis
Ættkvísl   Cornus
     
Nafn   canadensis
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Tófuber (tófuhyrnir)
     
Ætt   Skollabersætt (Cornaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt
     
Kjörlendi   Skuggi, vex best í hálfskugga
     
Blómlitur   Grænn-rauðfjólublár
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst
     
Hæð   -0,2 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Minnir á skollaber (C. suecica) en er aðgreindur á laufum sem eru í þyrpingum á sprotaendunum. Jurtkenndur fjölæringur, allt að 20 sm hár, með skriðular, hálf-trékenndar jarðrenglur.
     
Lýsing   Lauf 2-4 sm, egglaga til lensulaga, 6 talsins í þéttri, endastæðri hvirfingu. Æðastrengjapör 2-3. Blómin mjög smá, þétt saman í endastæðum sveipum, græn til rauðfjólublá, með 4-6 stór, hvít stoðblöð 1-2 sm löng. Aldin 6 mm í þvermál, skærrauð, hnöttótt.
     
Heimkynni   Alaska til Nýfundnalands, N-Ameríka suður í fjöllin, NA Asía.
     
Jarðvegur   Rakur, vel framræstur jarðvegur bestur. Einnig svalur, súr jarðvegur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   2
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Haustsáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum hefur verið sáð til tófuhyrnis 2010.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is