Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Frasera speciosa
Ættkvísl   Frasera
     
Nafn   speciosa
     
Höfundur   Douglas ex Griseb.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Liljuvöndur
     
Ætt   Maríuvandarætt (Gentianaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Grænleitur
     
Blómgunartími   Ágúst.
     
Hæð   - 100 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Liljuvöndur
Vaxtarlag   Fjölær jurt, allt að 200 sm há.
     
Lýsing   Stöngull sterklegur, ógreindur, fín-dúnhærð við grunninn. Lauf allt að 30 sm, öfuglensulaga til öfugegglaga, með 9-13 taugar. Blómskúfurinn allt að 60 sm, mjór, krónan allt að 2,5 sm í þvermál, hvít með græna slikju, með purpura doppur, flipar egglaga með 2 kögraða grunnkirtla, frjóhnappar fölgrænir.
     
Heimkynni   NA Bandaríkin.
     
Jarðvegur   Djúpur, frjór og fremur rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning
     
Notkun/nytjar   Í skrautblómabeð.
     
Reynsla   Þrífst vel í Grasagarði Reykjavíkur. Hefur reynst skammlífur í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Liljuvöndur
Liljuvöndur
Liljuvöndur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is