Jón Helgason - Úr ljóðinu Áfangar
Séð hef ég skrautleg suðræn blóm
sólvermd í hlýjum garði;
áburð og ljós og aðra virkt
enginn til þeirra sparði;
mér var þó löngum meir í hug
melgrasskúfurinn harði,
runninn upp þar sem Kaldakvísl
kemur úr Vonarskarði.
Potentilla multifida
Ættkvísl   Potentilla
     
Nafn   multifida
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Flipamura
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, þolir hálfskugga.
     
Blómlitur   Gulur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   -40 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Flipamura
Vaxtarlag   Fjölæringur með upprétta stilka, allt að 30 sm háir, lóhærðir.
     
Lýsing   Lauf fjöðruð til næstum fingruð, lóhærð, smálauf allt að 9, allt að 4 × 2 sm, fjaðurskiptir, flipar allt að 5, mjóir, grænir ofan, silfurlit neðan. Blómin mörg, 12 mm í þvermál, í endastæðum hálfsveip, stoðblöð aflöng-bandlaga. Bikarblöðin egglensulaga, jafn löng og eða ögn lengri en utanbikarblöðin. Krónublöðin gul, 6 mm, lítið lengri en bikarblöðin, öfughjartalaga.
     
Heimkynni   SA Frakkland, Lappland, Rússland til Tíbet og Kóreu.
     
Jarðvegur   Magur til meðalfrjór jarðvegur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   = 1, 2, http://www.pfaf.org
     
Fjölgun   Sáning, skipting. Fræi er sáð snemma vors eða að haustinu í sólreit. Þegar plönturnar eru orðnar nógu stóra til að handfjatla þær er þeim dreifplantað, hverri í pott fyrir sig og hafðar í sólreit fyrsta árið. Þeim er svo plantað á framtíðarstaðinn vorið eftir eða snemmsumars eftir að frosthættan er liðin hjá. Plöntunum er skipt að vorinu. Þegar um stórar plöntur er að ræða eru plönturnar gróðursettar beint á framtíðarstaðinn, litlar plötur eru settar í potta og látnar stækka í sólreit áður en þeim er plantað út í beð.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, beð, beðkanta. Hentug að rækta í léttum (sendnum), meðalþungum (leirkenndum) og þungum (leirkenndum) jarðvegi. Þrífst best í vel framræstum jarðvegi. Hentugt pH jarðvegs er súrt, hlutlaust eða basískt. Plantan getur lifað í hálfskugga (strjált skóglendi) og fullri sól, helst í rökum jarðvegi.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til tvær fremur ungar plöntur sem þrífast vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Flipamura
Flipamura
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is