Halldór Laxness

"Blóm eru ódauðleg... þú klippir þau í haust og þau vaxa aftur í vor, - einhversstaðar."

Rosa foetida 'Bicolor'
Ættkvísl   Rosa
     
Nafn   foetida
     
Höfundur   J. Herrm.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Bicolor'
     
Höf.   (Gerard before 1596)
     
Íslenskt nafn   Gullrós
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti   Rosa lutea bicolor Willm., ’Kapusinerrose’, Austrian Copper, Capucine, Capucine Bicolore, Capucine Briar, Copper, Corn Poppy Rose, R. lutea punicea, Rose Comtesse, Rosier Eglantier var. couleur poncea, Vermilion Rose of Austria R. bicolor Jaquin, R. foetida v. bicolor (Jaquin) Willmott. Rosa lutea v. punicea W.D.J. Koch, Rosa eglanteria v. punicea Lavallée, Rosa lutea v. bicolor Sims, Rosa sylvestris austriaca flore phoeniceo.
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Koparrauður innan, gult-dumbgult utan.
     
Blómgunartími   Ágúst.
     
Hæð   50-80 (-250) sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Foreldrar: Stökkbreytt fræplanta (sport) af Rosa foetida. Kynbótamaðurinn er óþekktur en talið er að hún hafi verið kynbætt fyrir 1590, sumar heimildir á netinu telja að Gerard hafi kynbætt hana 1596. Líklega mjög gamall blendingur milli R. kokanica og R. hemisphaerica eða að hún er stökkbreytt fræplanta af Rosa foetida segja aðrar heimildir. Runninn er uppréttur, miðlungstór, 50-80 sm hár, en getur orðið allt að 250 sm hár og 200 sm breiður, uppréttur og gisinn, blómstrar einu sinni á sumri.
     
Lýsing   Blóm eru einföld, fallega koparrauð að innan en ytra borð krónublaðanna er gult-dumbgult. Það er ekki óvenjulegt að bæði gul og koparrauð blóm geta verið á sama runna. Ilmar mikið, óþægileg lykt. Laufið ljósgrænt. Nýpur hnöttóttar, appelsínurauðar. Greinar slá stundum til baka í gulblóm form.&
     
Heimkynni   Blendingur.
     
Jarðvegur   Meðarakur, frjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar   Geislablettasýki, ryðsveppur.
     
Harka   Z4
     
Heimildir   Petersen, V, 1981: Gamle roser i nye haver. Utgivet av de danske haveselskaber København 1981, http://www.hesleberg,no, http://www.rose-roses.com/rosepages, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, davesgarden.com/guides/pf/go/165779/#b
     
Fjölgun   Sumar-, síðsumar- eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla.
     
Notkun/nytjar   Sólríkur vaxtarstaður. Ein planta á m². Höfð stök, í beð, nokkrar sama, í almenningsgarða. Viðkvæm fyrir sveppasjúkdómum þ.e. geislablettasýki, ryðsvepp, er yfirleitt hraust í svölu loftslagi. Þetta er ein mest ræktaða tegundin í heiminum, fundin víða í görðum erlendis.
     
Reynsla   Rosa foetida 'Bicolor' var keypt í Lystigarðinn 2006 og gróðursett í beð sama ár, vex vel og blómstrar lítið eitt.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is