Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Gagea lutea
Ættkvísl   Gagea
     
Nafn   lutea
     
Höfundur   (L.) Ker-Gawler
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Gullstirni
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær laukur.
     
Kjörlendi   Sól, skjól.
     
Blómlitur   Gulur.
     
Blómgunartími   Maí.
     
Hæð   10-25 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Gullstirni
Vaxtarlag   Fjölær jurt eða laukur, 10–25 sm á hæð.
     
Lýsing   Stofnlaufið eitt og bandlaga, stöngullauf lensulaga. Blómin gullgul, stjörnulaga í sveiplaga skipan í toppinn á blómstöngli. Blómgast snemma að vori.
     
Heimkynni   Evrópa (utan nyrstu svæða), Asia (M Asia, Japan).
     
Jarðvegur   Frjór, rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   1, 2
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Skrautblómabeð á rökum, skýldum stað, sem undirgróður undir tré og runna.
     
Reynsla   Gamall í Lystigarðinum, hefur þrifist vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Gullstirni
Gullstirni
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is