Í morgunsárið - Ragna Sigurðardóttir
Í morgunsárið greiðir hún sér með trékambi. Hægt með föstum
strokum. Vöxturinn er svo mikill að hana kitlar í svörðinn. Hún
strýkur hendinni yfir gróðurinn. Finnur blóm springa út undir
fingurgómunum. Sóleyjar og baldursbrár. Hún leggur kambinn frá
sér. Fer út í garðinn og krýpur. Kippir upp kartöflugrösum. Rótar og
grefur með berum höndum. Djúpt ofan í moldinni finnur hún sætar og
safaríkar appelsínur.
Potentilla fissa
Ættkvísl   Potentilla
     
Nafn   fissa
     
Höfundur   Nutt.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Gljúfurmura
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Rjómalitur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   - 30 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Gljúfurmura
Vaxtarlag   Fjölæringur, allt að 30 sm hár, kirtilhærður.
     
Lýsing   Lauf fjöðruð, smálauf allt að 13, bogadregin, jaðrar djúpskertir. Blómin mörg í kvíslskúf, allt að 2 sm í þvermál. Krónublöðin rjómalit, stærri en bikarblöðin.
     
Heimkynni   Bandaríkin,
     
Jarðvegur   Magur til meðalfrjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   1
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, beð, kanta.
     
Reynsla   Reyndist skammlíf í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Gljúfurmura
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is