Málsháttur
Mjór er mikils vísir.
Syringa tomentella ssp. sweginzowii 'Superba'
Ættkvísl   Syringa
     
Nafn   tomentella
     
Höfundur   Bureau & Franchet
     
Ssp./var   ssp. sweginzowii
     
Höfundur undirteg.   Koehne & Lingl.
     
Yrki form   'Superba'
     
Höf.   (Lemoine)
     
Íslenskt nafn   Fölvasýrena / Draumsýrena
     
Ætt   Smjörviðarætt (Oleaceae).
     
Samheiti   Syringa sweginzowii ‘Superba’
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítleitur, bleikur á innra borði.
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   2,4-3 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Fölvasýrena / Draumsýrena
Vaxtarlag   Stórvaxinn, uppréttur, lauffellandi runni, 2,4-3 m hár og álíka breiður.
     
Lýsing   Lauf langydd, lang-oddbaugótt, 10-14 sm löng, miklu ljósari á neðra borði en því efra, klasar mikið hærðir, leggir rauðleitir. Blómskipanir eins og hjá aðaltegundinni, Blómin hvítleit, bleik á innra borði, ilmandi. Frjóhnappar enda um 2 mm neðan við krónusauminn. Fræni aðeins lítið eitt lengri en bikarinn.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Meðalrakur, vel framræstur, lífefnaríkur, frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   7, http://davesgarden.com
     
Fjölgun   Sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í beð, í þyrpingar, sem stakstæður runni. Blómin góð til afskurðar.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 1993 og gróðursett í beð 1995. Þrífst vel, kelur ekkert, blómstrar árlega.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Fölvasýrena / Draumsýrena
Fölvasýrena / Draumsýrena
Fölvasýrena / Draumsýrena
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is