Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Rosa pendulina "Ammarnäs"
Ættkvísl   Rosa
     
Nafn   pendulina
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   "Ammarnäs"
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjallarós
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Rósbleikur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   200-300 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Fjallarós
Vaxtarlag   Rosa pendulina “Ammarnäs” er kvæmi frá Ammarnäs í Svíþjóð. Þetta er stór rósarunni sem verður 200-300 sm hár, greinar bogsveigðar og slútandi. Ungar greinar eru næstum þyrnalausar og gulgrænar. Einblómstrandi.
     
Lýsing   Blómin eru lítil, með 4-8 krónublöð, einföld og rósbleik, verða ef til vill dekkri í köldu loftslagi en hlýju (Lars-Åke Gustavsson). Blómin ilma fremur lítið. Runninn myndar fjölda af nýpum. Þær eru smáar, appelsínugular, flöskulaga, nokkuð langar, bikarblöðin vita fram á við.
     
Heimkynni   Kvæmi.
     
Jarðvegur   Meðalrakur, frjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z5
     
Heimildir   1, www.helpmefind.com/rose/l.php?l=2.5391.1
     
Fjölgun   Sáning, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Þrífst vel jafnvel þar sem jarðvegur er næringarefnasnauður.
     
Reynsla   Sáð 1993, plantað í reit 1995 og í beð 2004. Kelur lítið og þrífst vel. Vex mikið og blómstrar 2008, lítið um blóm 2009.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Fjallarós
Fjallarós
Fjallarós
Fjallarós
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is