Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Centaurea macrocephala
Ættkvísl   Centaurea
     
Nafn   macrocephala
     
Höfundur   Puschk. ex Willd.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Gullkornblóm
     
Ætt   Asteraceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   fagurgulur
     
Blómgunartími   ágúst-september
     
Hæð   1-1.2m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Gullkornblóm
Vaxtarlag   margir stinnir stönglar sem standa Þétt og eru þéttblöðóttir
     
Lýsing   körfureifar eru brúnar með trosnaða jaðra og mynda sérkennilega kúlu á stöngulendum áður en pípukrýnd blómin springa út blöðin heilrennd, stilklaus og liggja fast að stönglinum
     
Heimkynni   Kákasus
     
Jarðvegur   léttur, framræstur, magur
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   skipting, sáning
     
Notkun/nytjar   beð, Þyrpingar, sumarbústaðaland
     
Reynsla   Harðger, Þarf helst einhvern stuðning
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Gullkornblóm
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is