Vorið góða, grænt og hlýtt (Heinrich Heine, þýðing)
Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn,
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.

Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur;
eins mig fýsir alltaf þó:
aftur að fara í göngur.
Mimulus ringens
Ættkvísl   Mimulus
     
Nafn   ringens
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjólutrúður
     
Ætt   Grímublómaætt (Scrophulariaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Fjólublár, (bleikur eða hvítur).
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   - 100 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Fjólutrúður
Vaxtarlag   Fjölær jurt, hárlaus. Stönglar allt að 100 sm háir, greinalausir eða greindir ofantil, ferhyrndir eða með mjög mjóa vængi.
     
Lýsing   Lauf 5-10 sm, lensulaga til mjó-aflöng eða öfuglensulaga, hvassydd eða odddregin, mjókka að grunni eða eru bogadregin við grunninn, legglaus og greipfætt, jaðrar óljóst bogtenntir, minnka eftir því sem ofar dregur, þau efstu næstum bara eins og stoðblöð á sumum eintökum. Blómleggir stakir í efstu blaðöxlunum, beinast út á við, eru uppréttir eða uppsveigðir við fullan þroska, 2-4 sm, engin stoðblöð. Bikar 10-15 mm, flipar stuttir, breið-egglaga til hálfkringlótt við grunninn, mjókka snögglega í hálfbandlaga odd. Króna 25-30 mm, fjólublá, sjaldan bleik eða hvít, ginið mjótt.
     
Heimkynni   N Ameríka.
     
Jarðvegur   Frjór, rakur, framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í skrautblómabeð, sem undirgróður.
     
Reynsla   Hefur verið í Lystigarðinum af og til, oft skammlífur.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Fjólutrúður
Fjólutrúður
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is