Málsháttur
Mjór er mikils vísir.
Caragana tragacanthoides
Ættkvísl   Caragana
     
Nafn   tragacanthoides
     
Höfundur   (Pall.) Poir.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Geitakergi
     
Ætt   Ertublómaætt (Fabaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Runni
     
Kjörlendi   Sól
     
Blómlitur   Gulur
     
Blómgunartími   Snemmsumars
     
Hæð   -0.5 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur runni allt að 0,5 m hár, ungar smágreinar ullhærðar, mjög þyrnóttur, með marga, langæa, bogna aðallaufleggi, allt að 3 sm langa.
     
Lýsing   Lauf með 4-10 smálauf, axlablöð 0,3 sm, mjó, varla svo stinn að geta talist þyrnar, silkihærð. Smálauf allt að 1,5 sm, öfugegglaga, fleyglaga við grunninn, með aðlæg dúnhár. Blóm allt að 3 sm, gul, stök, á allt að 0,6 sm löngum, hærðum legg. Bikar 1,3 sm, bjöllulaga, ullhærður, tennur stuttar, þríhyrndar. Aldin allt að 3 sm, silkihærð.
     
Heimkynni   NV Kína til Altai-fjalla og NV Himalaja.
     
Jarðvegur   Grýttur, leirkenndur, sendinn jarðvegur, þurr til meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z4
     
Heimildir   1, http://en.hortipedia.com
     
Fjölgun   Sumargræðlingar, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpingar, í raðir.
     
Reynsla   Ekki í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is