Málsháttur
Mjór er mikils vísir.
Antennaria dioica 'Rubra'
Ættkvísl   Antennaria
     
Nafn   dioica
     
Höfundur   (L.) Gaertn.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Rubra'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Garðalójurt
     
Ætt   Körfublómaætt (Asteraceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Dökkrauður.
     
Blómgunartími   Júní-júlí.
     
Hæð   10-20 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Garðalójurt
Vaxtarlag   Fjölæringur sem myndar breiðu, oft þétt-lóhærður.
     
Lýsing   Fjölæringur með ofanjarðarrenglur. Grunnlauf allt að 4 x 1 sm, spaðalaga snubbótt, broddydd eða framjöðruð þétt hvít lóhærð neðan meira eða minna hárlaus á efra borði. Stöngullauf fá, lensulaga til bandlaga. Körfur næstum legglausar, stöku sinnum með stuttan legg, 2-15 saman í þyrpingu, stoðblöð græn-brún, efri hlutinn minnir á laufblöð, bleik-hvítur Kvenstoðblöð aflöng-egglaga, karlstoðblöð öfugegglaga. Fræhnotin oddbaugótt, grábrún, oddur með ógreindt hár.
     
Heimkynni   Yrki
     
Jarðvegur   Magur, þurr, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Skipting.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, beðkanta og víðar.
     
Reynsla   Harðgerð hérlendis.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Garðalójurt
Garðalójurt
Garðalójurt
Garðalójurt
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is