Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Lesquerella alpina
Ættkvísl   Lesquerella
     
Nafn   alpina
     
Höfundur   (Nutt.) S. Wats.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjallaperla*
     
Ætt   Krossblómaætt (Brassicaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Gulur.
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   - 25 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Fjallaperla*
Vaxtarlag   Þýfður fjölæringur, allt að 25 sm hár.
     
Lýsing   Trékenndur við grunninn, greinóttur. Stönglar uppréttir, ógreindir. Lauf allt að 7 sm, öfuglensulaga-spaðalaga til bandlaga, mjókka að blöðkuleggnum. Blómstönglar allt að 5 sm, bandlaga til öfuglensulaga. Klasar þéttblóma, lengjast stundum þegar aldinin þroskast. Bikarblöð 3,5-7 mm, spaðalaga, krónublöð 4-10 mm, gul, aflöng-oddbaugótt. Aldin 2,5-8 mm, hliðflöt við oddinn. Stíll 1,5-6 mm.
     
Heimkynni   Klettafjöll.
     
Jarðvegur   Sendinn, magur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir.
     
Reynsla   Þrífst vel í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Fjallaperla*
Fjallaperla*
Fjallaperla*
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is