Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Tulipa fosteriana 'Red Emperor'
Ættkvísl   Tulipa
     
Nafn   fosteriana
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Red Emperor'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Eldtúlipani
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti   Fosteriana blendingar (T. fosteriana x T. greigii eða T. kaufmanniana)
     
Lífsform   Laukjurt.
     
Kjörlendi   Sól og skjól.
     
Blómlitur   Skærrauður.
     
Blómgunartími   Maí-júní.
     
Hæð   - 50 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag  
     
Lýsing   Blómin stór, blómhlífarblöð allt að 15 sm, skærrauð, glansandi, grunnflekkur svartur með óreglulegan, gula kant.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Frjór, djúpur, el framræstur, jöfn vökvun.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Hliðarlaukar.
     
Notkun/nytjar   Í skrautblómabeð í skjóli.
     
Reynsla   Lifir almörg ár og blómstara, að minnsta kosti ef plantan fær áburð árlega.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is