Hulda - Úr ljóðinu Sorg
Þar sem blóm í laufalautum
ljúfu máli saman tala,
sem að ást og angur skilja, ?
blágresi og burknar grannir,
brönugrös og músareyra,
ljósberi og lækjarstjarna,
litlar fjólur, æruprísar,
gullmura og gleym-mér-eigi, ?
vildi ég mega minnast þín.
Thlaspi montanum
Ættkvísl   Thlaspi
     
Nafn   montanum
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjallasjóður
     
Ætt   Krossblómaætt (Brassicaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Snemmsumars.
     
Hæð   10-30 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Fjallasjóður
Vaxtarlag   Fjölær jurt sem myndar breiður, hárlaus, gráleit. Stönglar 10-30 sm, uppréttir. Lauf heilrend eða fíntennt og bugðutennt. Grunnlauf legglöng, egglaga til kringlótt. Stöngullauf egglaga-aflöng.
     
Lýsing   Krónublöð 5-7 mm, hvít. Frjóhnappar fölgulir. Skálpar 6-8 mm öfughjartalaga með breiða vængi og með breiða sýlingu.
     
Heimkynni   N & S Evrópa.
     
Jarðvegur   Grýttur, sendinn, rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   2, www.pnwflowers.com/flower/thlaspi-montanum-var-montanum
     
Fjölgun   Sáning.
     
Notkun/nytjar   Í beð, í steinhæðir.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 2002 og gróðursett í beð 2006, þrífst vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Fjallasjóður
Fjallasjóður
Fjallasjóður
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is