Halldór Kiljan Laxness , Bráðum kemur betri tíð.
Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga,
sæta langa sumardaga.

Rosa pendulina 'Alba'
Ættkvísl   Rosa
     
Nafn   pendulina
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Alba'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjallarós
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   100-150 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Fjallarós
Vaxtarlag   Villirós, einlend. Runninn er 100-150 sm hár, einblómstrandi, greinar oftast rauðleitar en einnig líka grænar, oft alveg þyrnalausar (!). Greinar bogsveigðar, hangandi, næstum þyrnalaus, aðeins óveruleg þyrnamyndun neðst. Skríður með neðanjarðarrenglur
     
Lýsing   Smálauf 5-9, lang-egglaga, 2-6 sm löng, tví-kirtilsagtennt, hærð bæði ofan og neðan, stundum líka hárlaus. Blómin 1-5, en oftast bara stök, hvít, allt að 4 sm breið og með reykelsisilm. Bikarblöð langæ, upprétt. Nýpur fjölmargar, glansandi, egglaga til flöskulaga, ljós- til dökkrauðar, 3 sm langar hangandi, oft álút og hárlausar. Nýpurnar innihalda aðeins lítið af hærðum smáhnetum.
     
Heimkynni   Fjöll S & M Evrópu.
     
Jarðvegur   Meðalrakur, frjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z5
     
Heimildir   1, Krüssmann, G. 1978: Handbuch der Laubgeholze. Band III Berlin - Hamburg, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm,
     
Fjölgun   Græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Runninn er notaður í limgerði, þyrpingar, stakstæður og í blönduð beð. Fallegur garðrunni að hausti og vetrinum til, mjög frostþolinn.
     
Reynsla   Harðgerð rós, vindþolin og nægjusöm, þarf að grisja reglulega.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Fjallarós
Fjallarós
Fjallarós
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is