Málsháttur
Engin er rós án þyrna.
Primula Pruhnicensis Hybrid 'Wanda'
Ættkvísl   Primula
     
Nafn   Pruhnicensis Hybrid
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Wanda'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Elínarlykill
     
Ætt   Maríulykilsætt (Primulaceae).
     
Samheiti   Réttara: P. x pruhonicensis Bergmans
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Hálfskuggi.
     
Blómlitur   Purpurarauður.
     
Blómgunartími   Apríl-maí.
     
Hæð   20-30 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Elínarlykill
Vaxtarlag   Vinsælasta yrkið. Myndar brúsk.
     
Lýsing   Lauf glansandi, eru stundum rauðbrún snemma vors. Blómin stök á stöngulendum, blöð fremur stór og gróf, tennt. Blómin purpurarauð.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Rakur, lífefnaríkur, frjór, svalur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   1,
     
Fjölgun   Skipting að blómgun lokinni.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð, í steinhæðir, í kanta. Þessar plöntur vaxa vel og blómstra mjög mikið í frjóum, rökum jarðvegi í hálfskugga. Það verður að fylgjast vel með þeim því sennilega verður moldin í kringum þær "þreytt". Það þarf því að skipta þeim á 3-5 ára fresti, annars drepast þær. Plantið þeim annars staðar eða skiptið um jarðveg á sama stað.
     
Reynsla   Þrífst vel í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Elínarlykill
Elínarlykill
Elínarlykill
Elínarlykill
Elínarlykill
Elínarlykill
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is