Málsháttur
Oft vex laukur af litlu.
Primula florindae 'Bronze'
Ættkvísl   Primula
     
Nafn   florindae
     
Höfundur   Kingdon-Ward
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Bronze'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Friggjarlykill
     
Ætt   Maríulykilsætt (Primulaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól eða hálfskuggi.
     
Blómlitur   Dökkappelsínugulur.
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   70-90 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Friggjarlykill
Vaxtarlag   Stærstur þeirra lykla sem í ræktun eru hérlendis, með miklar og djúpar rætur, blómleggir allt að 90 sm háir.
     
Lýsing   Laufin allt að 20 x 15 sm, sumargræn, blaðkan egglaga, grunnur hjartalaga, leggir laufa allt að 40 sm langir með mjóa vængi, oft rauðleitir. Blómstönglar allt að 150 sm, hárlausir, stundum aðeins mélugir ofan til, sveipir með (10)15-30(-80) blómum. Blómleggir 2-10 sm +/- mélugir, rjómalitir. Bikar allt að 1 sm, bjöllulaga, 8-10 mm, gul mélugur að innan, klofinn að 1/3, áberandi 5 æðóttur, flipar ögn aftursveigðir. Krónan um 2 sm í þvermál, bjöllulaga, ilmandi, dökk appelsínugul, flipar bogadregnir, heilir, yddir eða ögn tenntir. Fræhýði 2 x lengri en bikarinn. Fræ um það bil 2 mm.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Frjór, rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   1,2
     
Fjölgun   Skipting að vori eða hausti, græðlingar að hausti.
     
Notkun/nytjar   Sem undirgróður, í skrautblómabeð, í blómaengi.
     
Reynsla   Mjög falleg, auðræktuð og vinsæl garðplanta. Hefur vaxið lengi í garðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Friggjarlykill
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is