Sigfús Daðason - Vængjasláttur Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.
Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!
Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.
Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.
Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.
|
Ættkvísl |
|
Primula |
|
|
|
Nafn |
|
alpicola |
|
|
|
Höfundur |
|
(W.W.Sm.) Stapf. |
|
|
|
Ssp./var |
|
v. luna |
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
Stapf. |
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Fellalykill |
|
|
|
Ætt |
|
Maríulykilsætt (Primulaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær jurt. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól, hálfskuggi. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Gulur. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Júlí. |
|
|
|
Hæð |
|
40-60 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
Meðalvaxtarhraði. |
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Blaðhvirfing, blómstönglar uppréttir, stinnir. |
|
|
|
Lýsing |
|
Laufblaðkan mjög mjó, fínhrukkótt, grunnur bogadreginn. Blómin í einum sveip hjá ræktuðu plöntunum, ilma sætt. Krónan er breið-trektlaga til skállaga, gul, hvít eða gulmélug á efra borði krónublaða, flipar alltaf sýldir. Fræ um það bil 1,5 mm, brún. |
|
|
|
Heimkynni |
|
Kína. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Rakur, frjór. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
6 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1,2 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Skipting að vori eða hausti. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í steinhæðir, sem undirgróður, í fjölæringabeð. |
|
|
|
Reynsla |
|
Þrífst mjög vel í garðinum, auðveld í ræktun, þarf ekki að skipta oft, blómstrar mikið og lengi. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|