Jónas Hallgrímsson - Úr ljóðinu Dalvísa Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
|
Ættkvísl |
|
Senecio |
|
|
|
Nafn |
|
vulgaris |
|
|
|
Höfundur |
|
Linnaeus, Sp. Pl. : 867 (1753) |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Krossfífill |
|
|
|
Ætt |
|
Asteraceae (Körfublómaætt) |
|
|
|
Samheiti |
|
Senecio dunensis Dumort.
Senecio radiatus Koch |
|
|
|
Lífsform |
|
Einær jurt |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Vex við hús og bæi, í görðum, götum og lóðum, oft á röskuðum svæðum. Víða í þéttbýli en finnst einnig í stöku fjörum. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Gulur |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Júní-sept. |
|
|
|
Hæð |
|
0.12-0.25 m |
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Einær jurt. Stönglar uppréttir eða uppsveigðir, yfirleitt greinóttir ofan til, blöðóttir, lítt hærðir eða með fremur fáum hárum, 12-25 sm á hæð. |
|
|
|
Lýsing |
|
Blöðin þunn, greipfættum, óreglulega fjaðurskiptum eða fjaðurflipótt, þau neðstu oft sepótt. Separ og flipar óreglulega tenntir.
Litlar körfur (3-5 mm í þm) sem breiða lítið úr sér, í þéttum hálfsveip á greinaendum. Blómin gul, öll pípukrýnd. Krónan mjó, um eða innan við 1 mm á breidd, fimmdeild, 5-6 mm á lengd. Frævan með klofið fræni. Fræin með svifkransi. Ytri reifablöðin aðlæg, dökkydd, mun styttri en innri reifablöðin. Blómgast í júní-september.
LÍK/LÍKAR: Engar. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
|
|
|
|
Heimildir |
|
2,3,9, Hkr |
|
|
|
Reynsla |
|
"Seyði af plöntunni var haft við ýmsum hitasóttum, sárum magaverkjum og höfuðverk". (Ág.H.) |
|
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
Algengur á Suðvesturlandi frá Borgarfirði austur í Mýrdal, þar jafnvel fundinn nokkuð frá bæjum, slæðingur hér og þar í byggð í öðrum landshlutum.
Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Ástralía, Azerbaijan, Bútan, Bólivía, Kanada, Kína, Kosta Ríka, Equador, Færeyjrar, Grænland, Evrópa, Grænland, Ísrael, Japan, Mexíkó, Marokkó, Nýja Sjáland, Líbanon, Lesotho, Peru, Rússland, Sýrland, Taiwan, N Ameríka, Venesúela, Yemen. |
|
|
|
|
|