Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Saxifraga granulata
Ættkvísl   Saxifraga
     
Nafn   granulata
     
Höfundur   Linnaeus, Sp. Pl. : 403 (1753)
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Kornasteinbrjótur
     
Ætt   Saxifragaceae (Steinbrjótsætt)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt
     
Kjörlendi  
     
Blómlitur   Hvítur
     
Blómgunartími   Júní
     
Hæð   0.20-0.30 m
     
 
Vaxtarlag   Bleikrauðir, hnöttóttir æxlilaukar neðst við stöngulinn. 20-30 sm á hæð.
     
Lýsing   Blöðin nýrlaga. Blöð og neðsti hluti stönguls mjúkhærð og alllanghærð. Krónublöðin hvít, þrisvar sinnum lengri en bikarblöðin. Blómgast í júní. 2n=52.
     
Jarðvegur  
     
Heimildir   2,9, HKr
     
Reynsla  
     
     
Útbreiðsla   Mjög sjaldgæfur slæðingur á höfuðborgarsvæðinu. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Kanada, Rússland, Evrópa, Nýja Sjáland, N Ameríka, Mexíkó, Marokkó.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is